Upphafið
Héraðsprent var stofnað á Egilsstöðum
í september 1972 af hjónunum
Þráni Skarphéðinssyni og Gunnhildi Ingvarsdóttur. Með meistarabréf í prentun og eina litla trukkprentvél að vopni var fyrirtækið snúið í gang. Til gamans má geta þess að fyrst um sinn var prentsmiðjan til húsa í einföldum bílskúr. Þar var ekki sími og bárust verkbeiðnir því ýmist bréfleiðis eða á staðnum. Reyndar var það ósjaldan þannig að "prentarinn" var gripinn á förnum vegi og beðinn fyrir verkefnum. Þörfin fyrir þessa þjónustu var til staðar og jókust umsvifin því jafnt og þétt.
Það er leitun að iðngrein sem hefur gengið í gegnum aðra eins tæknibyltingu og prentun síðastliðin 40 ár. Frá upphafi gerðu eigendur sér það ljóst að mikilvægt væri að tileinka sér nýjungar ef fyrirtækið ætti að halda velli. Það eru því ófá tækin og tólin sem hafa á einhverjum tímapunkti þótt þau allra flottustu og bestu í geiranum en hafa nú runnið sitt skeið. Þó er ein vél sem hefur alltaf fylgt fyrirtækinu og er það fyrsta trukkvélin sem ævintýrið byrjaði með. Blýletrið er einnig varðveitt, til minningar um gamla tíma.
Frá upphafi hefur metnaður fyrirtækisins
legið í fagmennsku og vönduðum vinnu-
brögðum á öllum sviðum framleiðslunnar.
Tækjakostur
Tæknibúnaður og tækjakostur er eins og
best verður á kosið í nútíma prentsmiðju,
t.d. er 4ra lita prentvél í prentsalnum, nýleg og öflug tæki í frágangsdeild, Suprasetter plötuskrifari, góður floti af tölvum í hönnunardeild og rúsínan í pylsuendanum - stafræn prentvél af nýjustu gerð sem skilar afbragðs prentgripum á skömmum tíma.
Ekki bara prentsmiðja
Auk þess að bjóða upp á alla almenna prentþjónustu, hönnun og pappírssölu gefur Héraðsprent út Dagskrána á Austurlandi og Kompás.
Dagskráin er vikulegt auglýsingablað með sjónvarpsdagskrám, serm dreift er frítt á öll heimili á Austurlandi.
Kompás er fríblað sem kemur út árlega í upphafi ferðamannatímabilsins. Blaðið er bæði á íslensku og ensku. Þar er að finna ýmsar upplýsingar um Austurland auk þjónustuauglýsinga.
Starfsmenn
Hjá okkur starfa fagmenn sem láta sér annt um verk sín. Markmið okkar er að geta ávallt boðið upp á samkeppnishæfa þjónustu í heimabyggð.
Starfsmenn:
Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir
gunnhildur@heradsprent.is
Atli Leósson
print@heradsprent.is
Erlendur Steinþórsson
print@heradsprent.is
Hanna Gyða Þráinsdóttir
hanna@heradsprent.is
Hjörtur Óli Sigurþórsson
print@heradsprent.is
Ingunn Anna Þráinsdóttir
ingunn@heradsprent.is
Sigrún Júnía Magnúsdóttir
sigrun@heradsprent.is
Þráinn Skarphéðinsson
tilbod@heradsprent.is